¡Buenas!
Trip Start
Aug 30, 2010
1
7
37
Trip End
Mar 09, 2011
Where I stayed
Við höfum rennt neðan af buxunum og grafið sandalana upp af botninum á bakpokunum. Við erum komin til Arequipa og hér er bara ein árstíð – vor! Hér skín sólin um 360 daga á ári með um 25°C hita.
Síðasta mánudag byrjuðum við í spænskunámi. Skólinn og hótelið sem við erum á er í sömu byggingu svo það er mjög hentugt. Það er kennt í fjóra tíma á dag og fer kennslan fram úti í garði.
Það er nú ekki mikið sem við höfum gert síðan á sunnudag því eftir kennsluna höfum við þurft að sinna heimanámi sem tekur um þrjá til fjóra tíma. Eftir fullan dag af spænsku og sól höfum við því verið frekar þreytt! Hluti af heimanáminu er að prófa hitt og þetta matarkyns hér í Perú - ekki slæmt heimanám það!
Í gær gáfum við okkur þó tíma til að fara í klaustur hér í Arequipa sem kallast Santa Catalina. Og hér kemur kennslustundin: Klaustrið er það eina í heiminum sem er jafnframt borg. Svo klaustrið er borg innan borgar og var reist í kringum 1580. Samkvæmt hefðinni átti fyrsta dóttirin að giftast, önnur dóttirin að fara í klaustrið og þriðja dóttirin átti að hugsa um fjölskylduna. Hinar dæturnar máttu svo gera það sem þær vildu. Nunnurnar máttu nánast ekki hafa nein samskipti við heiminn hinu megin við vegginn. Einu samskiptin sem þær áttu voru við fjölskyldu sína í eina klukkustund einu sinni í mánuði. Samskiptin fóru fram í gegnum eins konar rimla sem voru tvöfaldir sem kom í veg fyrir það að nunnurnar gætu snert þá sem voru hinu megin við vegginn. Svo var alltaf ein nunna sem fylgdist með og gætti þess að allt færi fram innan skynsamlegra marka.
Nunnurnar bjuggu í eigin húsum eða þá að systur eða frænkur bjuggu saman svo það var fullt af húsum í klaustrinum sem hægt var að skoða og sjá hvernig þær lifðu. Fyrir hvert hús voru fjórir þjónar sem sáu um heimilisverkin.
Í dag eftir síðasta spænskutímann fórum við svo í heimsókn til Juanitu og hér kemur önnur kennslustund: Juanita er múmmía sem fannst árið 1995 nærri toppnum á fjallinu Apu Ampato sem er 6300 metra hátt og er í suðurhluta Perú. Juanita, sem var frá inka-siðmenningunni, var færð sem fórn til guðanna í fjöllunum. Það var engin smá vegalengd sem þurfti að fara til að komast að fjallinu sem þótti svo mikilvægt, eða tæplega 600 kílómetrar.
Juanita var um 12-14 ára þegar hún lést í kringum 1450 til 1480. Hún er best varðveitta múmmían sem fundist hefur enda hefur hún verið frosin öll þessi ár. Á sama fjalli fundust þrjú önnur börn sem höfðu verið færð sem fórnir en þau voru þó ekki til sýnis. Yngsta barnið hefur þó varla verið meira en eins árs gamalt.
Svo á sunnudaginn ætlum við að fara í tveggja daga ferð um Colca Canyon sem er eitt dýpsta gljúfur í heimi og tvöfalt dýpra en Grand Canyon í Bandaríkjunum.
Hasta luego!

Comments
Sæll !! pæliði í því ef þetta væri ennþá svona í dag að það væri bara planað hvað hver systir ætti að gera .. ég hefði allavega ekki meikað að vera systirin sem ætti að fara í klaustur .. ómæ!!! hljómar líka bara eins og fangelsi !
mega töff að þið séuð í þessari spænskukennslu og ekki slæmt að vera í kennslu útí garði ! :D snilld ! og ég væri nett til í 25stiga hita alla daga (eða okei kannski ekki akkurat á meðgöngunni en miðað við að ég var í smá berjamó í dag fyrir vestan meðan strákarnir voru í laxveiði, í sól og 6stiga hita, svo kom slydda og ógeð og hitinn fór niðrí 2gráður þá væri ég meira til í 25gráður og sól) :) vorum orðin vel frosin eftir þetta hehe !
og já svo er ég þvílíkt að meta þessa skjaldböku haha - hún er bara flott ;) ! eins og allar myndirnar ykkar þið þarna fallegu hjón :)
knúsknús frá okkur Magga !
Oh svo gaman að lesa um það sem þið eruð að upplifa!! Algjör gersemi fyrir mannfræðinginn mig :-) Njótið þess að vera til og hafið það gott áfram. Já og gott gengi með spænskunámið.