Leiðin til Tælands, full moon og köfun við Koh Tao

Trip Start Jan 14, 2011
1
9
12
Trip End May 25, 2011


Loading Map
Map your own trip!
Map Options
Show trip route
Hide lines
shadow

Flag of Thailand  ,
Friday, March 18, 2011

Jæja við vorum komnir með nóg af Kuala Lumpur og vorum líka á hraðferð þar sem planið var að ná Full Moon partýi í Tælandi! Framundan var ferðalag sem seint verður gleymt enda var það viiiiðbjóður.. Tókum 13 tíma rútu frá Kuala Lumpur til Hat Yai í Tælandi og sú rúta var virkilega fín, maður gat hallað sætum sjúklega langt og maður hafði það gott. Svo vorum við komnir til Tælands sjúklega þreyttir eftir mikið ferðalag síðustu daga og ákváðum við að taka næsta tuktuk sem við sáum og fara í Traditional Thai Massage! Vorum búnir að bóka aðra rútu sem fór eftir 2 tíma þannig við pöntuðum okkur klukkustunda nudd en eitthvað misskildu tælensku konurnar okkur  og héldu að við vildum 2 tíma.  Svo þegar það voru 5 mín í að við áttum að mæta í rútuna voru þær enn að nudda þannig við þurftum að hætta þegar hálftími var eftir!! Sjúklega næs nudd samt sem áður, fengum buxur til að vera í, heitt te, og horfðum á sjónvarpið :)

Svo var komið að rútu númer 2! Obojj á miðanum stóð 2 hours stand up sem þýddi að öll sætin voru full og við þurftum að standa í tvo tíma.. Auðvitað endaði það með að við sátum á gólfinu í stappaðri rútu í 4 tíma um miðja nótt, og fengum þá loksins sæti í næstu 3 tíma! Eftir þessa rútu var komið að ferjunni yfir til Koh Samui sem er eyja í Gulf of Thailand.. Var eh skíta cargo bátur með nokkrum bekkjum til að sita á. Samt sem áður steinrotuðumst við báðir og vöknuðum bara við eh kall sem sagði að allir væru að fara! Jæja við vorum svo komnir á þessa blessaða eyju, klukkan var 6 að morgni og við vissum ekkert hvar á eyjunni við vorum staddir og vissum ekki heldur hvert við ætluðum að fara og við vorum eins og algerir túristar sem stóðu bara og horfðu uppí loftið. Ekki hjálpaði það að ENGINN talaði ensku þarna þannig við vorum í tómu tjóni, sjúklega þreyttir! Endaði með að eh kona sagði okkur að fara í eitthvern minivan en auðvitað var hann troðfullur líka þannig við enduðum bara á því að standa utan á honum með allan farangurinn og allt í hálftíma! Nú vorum við komnir í eitthvern skítabæ sem enginn talaði ensku heldur í, fengum okkur morgunmat og komumst á internet kaffi! Ákváðum að vera góðir við okkur og bókuðum 2 nætur á luxus hóteli við ströndina. Var alveg drullunæs að vera kominn loksins á fínt hótel með sundlaug og ströndin var sko 2 metrum frá hótelherberginu! Dagurinn fór svo bara í sveeeefn þar sem við vorum búnir að ferðast í 25 tíma. Til að komast á hótelið þurtum við samt að taka motorbike taxi sem var ódýrast og tróðum við okkur á tvær vespur með allan farangurinn og tælending við stýrið.. Skemmtileg upplifun!

Að vera kominn til Tælands er allt öðruvísi en við höfum kynnst á þessu ferðalagi. Ekki margir tala ensku, sjúklega mikið áreiti frá fólki sem vill peningana þína, tuktuk bílstjórar vilja skutla manni 10 metra og tælenskar mellur standa útum allt og ískrar í þeim MAAAASSSAAAAGE!! Happyhappy!! I do you long time og ýmislegt fleira skemmtilegt! Fundum upp á góðri tækni til að díla við þetta með því að ískra bara massage tilbaka og gera grín að tuktuk bílstjórunum! Líka hérna í Tælandi er verðlagið orðið miklu lægra heldur enn allsstaðar annarsstaðar sem er sjúklega næs og við borguðum sem dæmi fyrir lúxushótelið 1500 kall á nóttina! Ekkert í líka verðmerkt sem er sjúklega pirrandi þar sem þeir reyna kannski að rukka þig 1000 kall fyrir bol sem þú endar með að kaupa á 200 kall. Þessir jólasveinar gera sko allt til að reyna fá eins mikinn pening út úr þér! Og já, við eigum líklegast eftir að nota orðið jólasveinar mjög mikið hérna þar sem við erum búnir að mæta eeendalaust af vitleysingum á þessu ferðalagi okkar um Asíu!

Næst á dagskrá hjá okkur drengjum var full moon partý í tælandi! Komumst að því að í hverjum mánuði þegar það er fullt tungl er haldið risa partý á Koh Phangan, eyjunni við hliðiná Koh Samui. Við keyptum okkur full moon boli og stuttbuxur og komum okkur í gírinn. Ákváðum að gista ekki á koh phangan heldur bókuðum við bara hostel rétt hjá höfninni og sigldum á milli. Við hittum brasilíska speedó kónginn á því hosteli aftur og hann fór með okkur í partýið. Vorum líka búnir að plana að hitta Víði og Söndru í partýinu og svo hittum við fleiri íslendinga líka! Þetta partý var í einu orði Svaaaaðalegt! Rúmlega 10.000 manns á ströndinni, eldhringir, eldrennibrautir og eldsnúnú! Maður keypti síðan bara fötu með rommflösku, kóki og redbull og allir voru í ruglinu af þessum fötum! Myndirnar frá partýinu tala sínum orðum en því miður erum við bara með lítinn part af þeim þarsem við þorðum ekki að taka okkar myndavél og keyptum okkur bara einnota, gvuð hvað það verður gaman að sjá þær myndir! Dagurinn eftir partýið fór svo í að liggja í rúminu og horfa á DVD.

Næsta dag ákváðum við að skella okkur til Koh Tao sem er ein mesta köfunarparadís í heiminum og vinsælasti staður í heimi til að taka köfunarréttindi.. Stoltir útskrifuðumst við með topp einkunn og skemmtum okkur sjúklega vel! 100 % staður sem maður væri til í að fara aftur á og taka fleiri réttindi í framtíðinni. Víðir og Sandra voru líka þarna með okkur og svo hittum við líka Tinnu, Hrund og Beggu sem eru allt stelpur sem Eyþór þekkti að heiman. Fórum meðal annars á LadyBoy kabarett sýningu sem var sjúúúklega fyndið. Endaði á að einn ladyboyinn tók lagið my way, eða mæmdi það og strippaði úr öllum konufötunum klæddi sig í jakkaföt og tók af sér hárkolluna og farðann! Semsagt endaði sem „gaur gaur".

Kominn var tími til að segja bless við paradísina og skella sér í örtröðina og mengunina í Bangkok, planið var að vera þar bara í 1 dag og fara síðan Norður til Chiang Mai, en meira um það mjöög fljótlega! Við lofum í þetta skiptið..

Kveðja

Eyþór og Adam
Slideshow

Comments

Pétur Bauer on

Loksins blogg frá ykkur, þetta virðist allt mjög frustætt en á sama tíma spennadi, hlakka til að lesa restina... sérstaklega það sem gerðist í Laos :)

Sigríður Dagbjört on

Mikið rosalega öfunda ég ykkur !! og pant fá köfunarkennslu hjá ykkur þar sem þið eruð nú með réttindin :D

Add Comment

Use this image in your site

Copy and paste this html: