TONGA

Trip Start Jan 14, 2011
1
4
12
Trip End May 25, 2011


Loading Map
Map your own trip!
Map Options
Show trip route
Hide lines
shadow
Where I stayed
Erin Tucker, Ma'afanga

Flag of Tonga  , Tongatapu,
Thursday, January 20, 2011

Malo e lelei ki he pongipongini! Góðan daginn frá Tonga elsku vinir.

Við sitjum hérna á Youth Hosteli í Nýja Sjálandi nýlentir að brainstorma dvöl okkar í Tonga.

Við lentum á flugvellinum í Nuku'alofa með enga hugmynd hvort við yrðum sóttir eða ekki.  Svo löbbum við út og sjáum einn hvítingja standa í hópnum og gerðum ráð fyrir að þetta væri hún Erin, sem reyndist rétt!  Hún keyrði okkur heim og Adam sá villt svín í fyrsti sinn á ævinni og hefur sjaldan sést jafn spenntur maður á götum Tonga, án gríns það var ótrúlegt að sjá á honum smettið!!!

Fyrsti dagurinn var frekar rólegur.  Við prufuðum báðir í fyrsta skipti vinstri umferð og skelltum okkur í sund í sjónum með innfæddum. Fengum okkur að borða um kvöldið með Erin og áströlskum vinum hennar og komumst að því the hard way að kjúklingur, kjúklingaréttir og já kjúklingaborgarar í Tonga er borinn fram með beinum brjóski og viðbjóði!!

Næsta dag var komið að því að sólbrenna sig aðeins!! Við skelltum okkur til Pangaimotu, eyja rétt fyrir utan aðaleyjuna. Þar var bara tjillað í sólinni, drukkið sex on the beach og buslað í sjónum.  Það er auðvelt að gleyma sér í hvítum sandi, blágrænum sjó og mátulegum hita og vöknuðum við svo sannarlega eins og epli daginn eftir. 

Næsta kvöld fór í að drekka eins og Ástralarnir á Tonga gera best, og fórum við á eflaust eina skemmtistað Tonga og voru Áströlsku sjálfboðaliðirnir endalaust að færa okkur drykki. Gaman að segja frá því að það er víst hefð á Tonga að ef hjón eiga t.d 3 eða 4 stráka, þá lendir það á yngsta stráknum að gerast kona á heimilinu og hjálpa til við heimilisstörfin. Þeir taka því samt með stakri príði og gerast bara ladyboy-ar. Og án gríns gaurar frá Tonga eru engin smától og það var svo sjúklega fyndið þegar hópurinn af risastórum ladyboy-um komu vaðandi inn á háu hælunum.
Við meikuðum ekki þennan stað lengur í 20 stiga hita og 100 % raka og skelltum við okkur því í smá sundsprett eftir djammið þar sem að bryggjan var hinu megin við götuna.

Næstu dagar fóru í það að skoða aðaleyjuna.  Við fórum að skoða blowholes, helli sem hægt er að synda í, veiða með HUGE ASS skutulbyssum og slappa vel af í sólinni.  Því miður eru ekki mikið af myndum til því öll hleðslutækin og millistykki voru í töskunni hans Adams sem var búin að vera týnd í samanlagt 14 daga. 

Daginn áður en við áttum flug heim ákvað fellibylurinn Wilma að kíkja á Tonga með tilheyrandi brjálæðisvind og rigningu.  Feykti hann meðal annars glugga úr einu herberginu á húsinu okkar og áströlsku gaurarnir vissu ekkert hvað áttu að gera og leituðu ráða til Íslendinganna.  Við að sjálfsögðu fundum stóran planka, vippuðum okkur upp á þak í 30 m/s vindi og nelgdum fyrir gluggann.  Hetjur, já!  Næst tóku við margir klukkutímar án rafmagns og við vissum ekkert hvað leið á fellibylinn.  Við spiluðum og spiluðum, elduðum í myrkri og myrtum risa margfætlu. 

Áttum svo flug til nýja sjálands daginn eftir, en elsku Wilma hafði skemmt eitthvað GPS tæki á flugvellinnum svo fluginu var frestað um 13 tíma! Við fundum okkur bara gott spot á kaffihúsi í bænum, fengum okkur að borða og horfðum á MATRIX! Svo komu áströlsku vinkonur okkar á kaffihúsið og björguðu okkur gjörsamlega, buðu okkur að koma með í partý (Australian Day). Þar var bara grillað, drukkið öl, spilað jungle speed og krikket.

Verðum að koma því að líka að það er ótrúlegt að sjá hvað túristar (hvítingjar aðallega) eru sjaldgæfir á Tonga! Allir litlir krakkar stara á mann, og öskra palangi, palangi sem þýðir Hvítur Engill á tongísku.

Top 3 Tonga

1.      Erin Tucker. Án hennar hefði dvölin verið skrítið, við hefðum ekkert vitað hvað við ættum að gera! Hún keyrði okkur út um allt, sýndi okkur og kenndi helling um Tonga og kynnti okkur fyrir fullt af skemmtilegu fólki

2.       Fakaleti menningin, sjúklega fyndið (ladyboys)

3.       Tjillið á ströndinni og spear fishing!
Slideshow

Comments

Þórbjörn og Sóldís on

Skemmtileg lesning, gaman að sjá og heyra að það er gaman hjá ykkur. Hlakka til næstu lesningar.....

Pétur Bauer on

Skemmtilegt að lesa bloggið ykkar og myndirnar sem fylgja með eru frábærar, meiri svona strákar. Góða ferð og góða skemmtun á Nýja Sjálandi.

Add Comment

Use this image in your site

Copy and paste this html: