Yndislegur tími í LA, aka Christie land
Trip Start
Jan 14, 2011
1
3
12
Trip End
May 25, 2011
Where I stayed
2827 South Hoover street
Jæja kæru vinir, hér situm við félagarnir í flugvél á milli Tonga og Samoa og ákváðum að smella í eitt blogg handa ykkur sem heima sitið.
LA var vægast sagt alger veisla, unaður og meððí!! Reyndar var flugið þangað ógeðslegt, 12 tímar í frekar þröngum sætum, algerlega ósofnir, og helvítis flugfreyjan þurfti alltaf að vera að tjá sig og vekja mann! En OK. Couchsurfing vinkona okkar kom og sótti okkur á flugvöllinn og tók á móti okkur í 20 stiga hita, sól og blíðu. Hún býr rétt hjá USC campus ásamt 6 stelpum og fengum við að krassa sófann hjá þeim.
Og já, auðvitað er hann Adam ennþá töskulaus á þessum tímapunkti og við vitum ekkert hvort eða hvenær hann fær allt draslið sitt þannig við ákváðum að bruna uppí Beverly Hills center og splæsa í föt á kallinn fyrir kvöldið, því við vorum víst að fara á eitthvað svaðalegasta djamm Los Angeles borgar!
Röltum heim til einhvers vinar Christie sem var að halda útiparty. Borguðu honum 20 dollara og innifalið í því var frítt áfengi í partýinu, VIP inná heitasta skemmtistað Hollywood, og ferð með glæsilegri limmósínu fram og tilbaka, og við erum að tala um að þessi Limma tók 30-35 manns og var með heitan pott í skottinu! Næs? Já!
Við vorum á þessum skemmtistað til sirka 2 því allir skemmtistaðir þarna í Hollywood loka um það leyti. Okkur fannst það væntanlega mjög skrítið því við erum náttúrulega sem Íslendingar vanir að djamma fram á rauða nótt! Líka skrítið að segja frá að til þess að komast á þennan stað þá þurfa að vera svona sirka 4 stelpur á hvern strák! Áfengið þarna inni var líka sjúklega dýrt, en við keyptum okkur þrjú töfrateppi og borguðum 44 dollara fyrir. Sagði manni kannski eitthvað þegar það voru marglyttur syndandi inní veggjunum á barnum! Já gott að taka það fram að þegar við komum heim þá vorum við búnir að vera vakandi í sirka 32 tíma!!
Daginn eftir kom vinur Christie, Corey, og pikkaði okkur upp í þynnkugöngu ársins upp að Hollywood skiltinu. Markmið dagsins var að reyna snerta það en það var ekki hægt vegna stífrar öryggisgæslu LAPD.
Corey rúntaði síðan með okkur um Hollywood, Beverly Hills og alla þessu helstu staði sem hægt er að skoða þarna í borg kvikmyndanna.
Um kvöldið var okkur svo boðið í grillveislu hjá einhverjum æskuvini Christie downtown LA, og er þessi gaur alveg ekki af slæmum ættum þar sem hann splæsti í Penthouse íbúð með vangefnu útsýni yfir borgina. Við mættum þarna inn og þá tók bara eitthvað security á móti okkur og spurði hvert við værum að fara. Við grilluðum Burgers hjá honum, skelltum okkur í sund og heitan pott, drukkum ískaldan öl og horfðum á Golden Globes!
Seinna um kvöldið fékk Christie svo símtal frá vini sínum sem spurði hana hvort hún vildi ekki koma með sér í Golden Globe eftirpartýið. Hún sagði að hún væri með tvo íslendinga með sér sem hún gæti ekki skilið eftir og þá sagði hann henni bara að taka þá með sér, en hún þurfi þá auðvitað bara að finna einhverjar sætar stelpur með þá! Næsta klukkutíman er Christie á fullu að plögga áður en síminn hennar deyr og varð þá ekkert úr draumnum að komast og hitta stjörnurnar L
Þegar við komum heim vorum við svo þreyttir að við rotuðumst á 30 sek. Allavega Eyþór þar sem hann hafði vaknað kl 8 til að horfa á United – Tottenham!
Næsti dagur var rosa kózý, keyrðum til Santa Monica, Venice Beach og Muscle Beach og bara tókum því mega rólega! Um kvöldið var nefnilega LA Lakers vs. Oklahoma Thunders. Christie að sjálfsögðu hafði reddað okkur góðum miðum í Luxury Suite Level á mjög góðu verði miðað við að hver miði þar kostar ca. $200. Komumst svo að því að við fengum þetta svona ódýrt útaf við keyptum miðana hjá einhverjum svindlara sem sá um að svindla fólki inn á leikinn. Vorum með fake miða og þeir þekktu eina konu sem skannar miðana, og þetta var alveg þvílíkt stressandi allt! Endaði samt með að við komumst inn á veitingastaðinn sem eru drullu sweet sæti eins og þið sjáið væntanlega á myndunum. Þar fengum við drullu næs Nautasteik með humar bernaise sósu, sjiiiit það var gjeermeih!
Nú erum við semsagt bara alveg að lenda í Tonga og flugfreyjan búin að segja okkur að slökkva á tölvunni þannnig við erum farnir!
P.S. ef þið hafið verið að fylgjast með þá eru þetta engar fréttir fyrir ykkur en nú er dagur 9 sem Adam er tösku og linsulaus.. vonandi fer þetta að reddast !
Adam og Eyþór