Stóri dagurinn!

Trip Start Sep 02, 2011
1
5
49
Trip End Dec 16, 2011


Loading Map
Map your own trip!
Map Options
Show trip route
Hide lines
shadow
Where I stayed
Heima - í síðasta skiptið í bili :)

Flag of Iceland  , Capital Region,
Friday, September 2, 2011

Eftir brjálaða niðurtalningu, talsvert mikið skipulag og einstaklega skemmtilegan undirbúning er loksins komið að stóra deginum, en ég flýg til London núna seinnipartinn :) 

Mig langar að þakka öllum sem hafa sent mér góðar ferðakveðjur og heillaóskir og ég lofa að fara varlega, skemmta mér hrikalega vel og njóta hverrar einustu mínútu á ferðalaginu!! 

Ég lauk við að pakka öllu í gær og það var mikill sigur þegar stigið var á vigtina með bakpokann, hann er ekki nema 12 kg og handfarangurinn (lítill bakpoki) er 4 kg. Samtals 16 kg út til London... Helginni verður svo eytt í smávegis shopping (jeyj) ætla að kaupa nýja hlaupaskó og aðrar nauðsynjar fyrir ferðalagið til Ástralíu!  Reikna með að heildarvigtin verði þó ekki nema svona 17 kg eftir þau innkaup, sem er bara vel sloppið finnst mér! 

Svo ég segi bara bless við fagra Ísland í bili, panta jólasnjó og hvíta paradís þegar ég kem heim 16. desember... 

Yfir og út, 
Lilja

Comments

María Rán on

Fylgist spennt með frá Barcelona:)

Add Comment

Use this image in your site

Copy and paste this html: