4 dagar 22 klst!

Trip Start Sep 02, 2011
1
4
49
Trip End Dec 16, 2011


Loading Map
Map your own trip!
Map Options
Show trip route
Hide lines
shadow
Where I stayed
still at home!
What I did
Mini flutningar og skipulag...

Flag of Iceland  , Capital Region,
Sunday, August 28, 2011

Þó ég sé nú eiginlega alveg komin með nóg af þessum undirbúningsfærslum þá kemur hérna ein í viðbót! 

Ég stóð nefnilega við það að prufupakka! Það gekk ótrúlega vel, náði leikandi að setja allt í bakpokann og hann varð ekkert of þungur, um 13 kg með handfarangri en þó þannig að það var ekki alveg allt komið í hann, kannski um 90% af dótinu eða svo! Verður gaman að sjá muninn á fimmtudaginn þegar ég pakka í alvöru :D 

Svo er ég komin með alþjóðlegt ökuskírteini núna svo ég get leigt mér bíl í Californíu og rúntað um þar, og jafnvel eitthvað í Ástralíu líka, kemur bara í ljós hvað ég geri en það eru alla vega allir möguleikar opnir núna! 

Afrek dagsins var svo að standa í smá flutningum, reyndar bara milli herbergja, en ég er núna búin að tæma skápinn minn og setja föt og dót í geymslu fram að jólum! 

Kem með skemmtilegri bloggfærslu þegar ég hef eitthvað merkilegt að segja! 

þangað til...
Lilja
Slideshow

Use this image in your site

Copy and paste this html: