Öðruvísi dagur

Trip Start Aug 19, 2011
1
6
8
Trip End Aug 26, 2011


Loading Map
Map your own trip!
Map Options
Show trip route
Hide lines
shadow

Flag of United States  , Illinois
Wednesday, August 24, 2011

Fórum af stað eftir morgunmatinn og tókum stefnuna beint á Aurora, eitt af úthverfum Chicago. Dagurinn var sem sagt löngu frátekinn sem innkaupadagur ferðarinnar, og hvað er þá betra en "Premium Outlets" í Aurora? Vorum komin þangað um klukkan 11:30 og tókum daginn þar að mestu. Tilboðin í búðunum voru með slíkum eindæmum að það endaði á því að Jónas hafði keypt sér tvenna skó! Gunna fór á flug í stelpufötunum, enda loksins á sextugsaldrinum sem hún fær að kaupa svona "dúlluföt" á stelpur!

Raunar var ágætt að nota daginn í þetta, því í verslununum er loftkæling, en hitinn úti var nánast óbærilegur, var lengst af dagsins um 95°F sem er um 35°C. Undir kvöld var hitinn kominn niður fyrir 90°F og spáin fyrir morgundaginn er alveg bærileg.

Á heimleiðinni frá Aurora fengum við að njóta umferðarmenningar Ameríku, langar tafir á vegunum, lestarnar á fullri ferð framhjá okkur og síðast en ekki síst komu flugvélar til lendingar á flugvelli borgarinnar rétt yfir hausinn á okkur. Eru ekki sumir Íslendingar sem telja flugumferð yfir þéttbýli og flugvelli í nágrenni við byggð hina verstu ógn við líf og heilsu fóks?

Enduðum kvöldið á katalónskum veitingastað, en af því ég gleymdi gleraugunum heima á hóteli, það var of dimmt til að Gunna sæi á matseðilinn og Örn var hvergi nærri, þá vitum við ekki hvað við borðuðum!
Aurora hotels Slideshow

Use this image in your site

Copy and paste this html: