Hvíldardagur og verslunar...

Trip Start Sep 21, 2010
1
4
8
Trip End Sep 29, 2010


Loading Map
Map your own trip!
Map Options
Show trip route
Hide lines
shadow

Flag of United States  , Massachusetts
Friday, September 24, 2010

Tókum það rólega í dag, lékum okkur við (að) Kristínu Völu um stund áður en við röltum í búðirnar handan götunnar. Greinilegt að Halloween er á næsta leyti eins og sjá má á myndunum.

Síðdegis var svo mesti hrollurinn tekinn úr verslunarþörfinni og skroppið í verslunarmiðstöðina stóru í Holyoke sem er skammt frá Springfield. Ég keypti mér vetrarúlpu, aleinn og án hjálpar - maður er að verða sjálfbjarga með árunum!

Enduðum daginn á ótrúlega flottu gömlu grillhúsi úti í sveit, Bub´s BBQ. Uppáhaldsstaður sveitamannsinns Helga! Það er alltaf jafngaman að vera í útlöndum hjá einhverjum sem þekkir orðið svæðið og getur farið með mann á svona staði.

Þótt komið sé fram á haust samkvæmt tímatali hérlendra, þá þökkum við fyrir loftkælinguna á hótelinu okkar. Hitinn í dag var vel yfir 30 gráðurnar og segja menn í sjónvarpinu að þetta sé síðbúin sumarauki. En það spáir betur næstu daga.

Slideshow

Comments

Helga Þyri Bragadóttir on

Gott að vita að allt gangi vel. Sérstaklega að Gunna skuli hafa komist í búðir og náð að versla eitthvað. Kristín vala er dásamlega flott. Enn og aftur; knúsar á línuna.

Add Comment

Use this image in your site

Copy and paste this html: