Mendoza - Helsta vínhérað Argentínu
Trip Start
Dec 22, 2010
1
40
54
Trip End
Ongoing
Um hánótt skreið rútan okkar yfir hæsta punkt Andesfjallanna, það var skrambi kalt á landamærunum þar sem góðan tíma tók að hleypa rútunni í gegn. Fara þurfti yfir allan farangur með tilheyrandi tilfæringum og svo náttúrulega hið venjulega stimplaferli sem við erum orðin þokkalega sjóuð í (trixið er að vera bara nógu andskoti þolinmóð). Þegar við vöknuðum svo aftur vorum við komin inn í eitt helsta vínhérað Argentínu, Mendoza. Eftir töluvert flakk vorum við sátt með að geta leyft okkur að taka því rólega, taka saman og fara yfir allar uppástungur sem við höfðum sankað af okkur og gera gróft plan yfir það sem við hefðum hvað mestan áhuga á að sjá og gera næstu vikurnar.
Við fundum okkur hostel, tókum gott labb um borgina allan daginn, reyndar fór dágóður tími í að villast í risastórum almenningsgarði...og það átti ekki eftir að vera eina skiptið sem það gerðist á meðan á dvöl okkar stóð. En í þetta skiptið gengum við hann fram og til baka í leit að stórmarkaði sem var merktur inn á kortið sem við vorum með í höndunum (reyndist vera þvæla). Með hjálp strætókerfisins komumst við þó fyrir rest út úr garðinum sjálfum en... enduðum einhversstaðar sem enginn veit. Við vorum í það minnsta komin þónokkuð vel út af kortinu þegar strætóinn stoppaði og henti okkur út. Eftir nokkra leit hittum við blessunarlega á þennan fína mann fyrir rest sem tók sig til og skipaði strætóbílstjóra nokkrum að keyra okkur á hostelið okkar. Við enduðum því þar, hvílum okkur aðeins og fórum svo út á dúndur veitingastað þar sem við gæddum okkur á fyrstu og langt frá því síðustu argentísku steikinni okkar!
Það allra mikilvægasta sem fólk gerir á þessu svæði er að fara í lærdómsferð um vínhéraðið, sem inniheldur mikinn fróðleik og jafnvel smá smakk. Nokkrir möguleikar eru þar í boði en þar sem við vorum sátt við að vera komin í bærilegt hitastig og sól ákváðum við að fara til herra Hugo sem er með hjól sem hann leigir og býður fólki að hjóla milli vínekra og sanka að sér mismunandi fróðleiksmolum! Þessi ferð gekk alveg með eindæmum vel og voru fákarnir það öflugir að þetta var eins og að svífa á skýi í gegnum daginn... hugsanlega hafði „smakk" conseptið þó eitthvað með þá tilfinningu að segja, en það er aukaatriði! Þennan dag heimsóttum við m.a. safn um víngerð, súkkulaðigerð sem var eiginlega meira í að sýna okkur líkjöra, pestó, ólivur og sterkt áfengi sem þau eru að framleiða. Bjórgarð (sem átti eina tegund af bjór), ólifuræktunarsvæði og líklega 4-5 ólíkar vínekrur. Eftir daginn komum við svo full... af fróðleik til hans Hugo en hann var sko ekki á því að hleypa okkur í burtu! Þarna var hann búinn að skella upp þessu fína partýi og gekk á milli fólks og fyllti á vínglösin áður en möguleiki væri á að drekka svo mikið sem þriðjung úr þeim. Við yfirgáfum Hugo því í góðum gír og tókum strætó til baka á hostelið þar sem okkar beið svakaleg argentísk steikarveisla! BBQ – argentinian style þar sem fínasta fólk af hostelinu skemmti sér fram eftir kvöldi!... það var hálf dauft yfir okkur daginn eftir, eitthvað smá slöpp....líklega flensa ;)
Við vorum komin í svakalega afslappaðan gír en til þess að gera eitthvað að viti gengum við um öll helstu torg borgarinnar og fórum svo í túristabus sem flakkaði um milli merkilegustu staða borgarinnar (við skildum reyndar takmarkað spænskumælandi leiðsögumanninn). En útsýnið var gott og var endað á því að fara upp á hæð þar sem góð yfirsýn er yfir borgina.
Síðasti dagurinn í borginni var svo ekki á áætlunninni heldur var enginn rúta um morguninn sem við ætluðum af stað, yfir til Chile. Við nældum okkur þó í miða seint um kvöldið til Neunquen (Argentínu) og áttum við þaðan að geta tekið aðra rútu yfir landamærin. Vegna þess tíma sem við höfðum nú aukalega í borginni var ákveðið að skella töskunum bara í geymslu og nýta tímann í rölt í gegnum dýragarð borgarinnar, svona til þess að gera eitthvað... en okkur til mikillar gleði var garðurinn alveg magnaður. Þegar við loksins komumst í hann! Þurftum nefnilega að ganga í gegnum stóra almenningsgarðinn sem nefndur er hér að ofan til þess að komast þangað. Það tók drykklanga stund en fyrir rest vorum við komin meðal allskyns skemmtilegra dýra, fuglaflóru, offituljóna, betlandi simpansa og fíls sem Sigrún stalst til að gefa að borða.
Hægt er að skoða myndbönd hér að neðan:

Comments
sit her fastur i stockholm vegna eldgoss = frabaer vinsmokkun greinilega er samt ekki alveg ad kaupa vinsmokkun og hjolakonseptid. Mr. HuGo med ordaleikinn alveg a hreinu i nafninu.
luv pabbs og asrun og ashildur
Loksins kom blogg . Takk fyrir það og spjallið á skype í gær. Frábærar myndir eins og alltaf. Videóin með öpunum algjör snilld.
Dimma og Coco voru að spyrja hvort þið færuð ekki að koma heim. Fórum til dýralæknis í morgun. Coco fékk sprautu með sýklalyfi og vitamini plús það að fá töflukúr með heim. Dimma fékk líka sprautu vegna ofnæmis á nebbanum. Bara kátar með þetta. Þær fóru báðar á vigtina Coco í kjörþyngd + $6#"!""%$# ( ég var ekki með gleraugun) , Dimma um 32 kg (en læknir sagði að hún væri alls eki feit, bara falleg og góð). Þær eru í ströngu aðhaldi báðar og fá ekki aukaskammt þó að það mætti halda það. Bara eitt og eitt myglað fransbrauð á óheiðarlegan hátt.
.
Bestu kveðjur til ykkar allra Pabbi
Þetta er svo mikil sniiiiiiiiiiiiiiiilllllld;)
Loksins, loksins kom blogg :-) Takk fyrir skemmtilega lesningu og frábærar myndir, ótrúlega sniðugir apalingar. Hlakka mikið til að sjá ykkur bráðum. Ástarkveðjur, knús og kossar frá okkur öllum.
Jibbíííí gaman að lesa nýtt blogg frá ykkur, loksins :) Ég bíð spennt hér á klakanum eftir nýjustu ferðasögunni og myndum :) Greinilegt að mín er orðin rauðvínssérfræðingur, finnst svo stutt síðan við vorum í Frakklandi að taka okkar fyrstu spor í rauðvíninu :) Við verðum sem sagt góðar í sötrinu í vetur :) Annars er ég föst í Reykjavík út af eldgosi á Suðurlandinu, ofsaveðri á Austurlandinu og snjóhríð á Norðurlandinu, kemst sem sagt ekki neitt. En þetta er nú að verða daglegt brauð hjá mér þannig að ég er þokkalega róleg :) Langar ofsalega mikið til þess að heyra frá ykkur á skype fljótlega, ást og kossar :*
Gott að heyra í ykkur á Skype í gær og skoða myndir í leiðinni. Fannst apamyndböndin snilld!! Vonandi er til meira af life videomyndum þó að hinar gefi góða mynd. Hlakka til að fá ykkur heim.
Kveðja
mamma
er ánægð með rauðvíns smakk kennsluna, hlakka til að halda menningarleg rauðvínskvöld með ykkur þegar þið komið heim:* auðvitað má líka vera með DÓLG á menningarlegum rauðvínskvöldum:) híhí