Sucre

Trip Start Dec 22, 2010
1
33
54
Trip End Ongoing


Loading Map
Map your own trip!
Map Options
Show trip route
Hide lines
shadow

Flag of Bolivia  , Chuquisaca,
Wednesday, March 23, 2011

Ég sit í rútu þegar þetta er skrifað, við lögðum af stað hálf 8, klukkan er 10 og erum við rétt komin út fyrir borgina. Viðbjóðinslyktin af manninum sem liggur á ganginum lætur æluna koma upp í háls og vei, ferðin átti að taka 12 tíma. Úff best að loka tölvunni og reyna að sofna!

Jæja, við komumst til höfuðborgarinnar þrátt fyrir ógeðinslyktina og enn ógeðslegri vegi. Nei, við erum ekki farin að rugla, um er að ræða aðra höfuðborg landsins. Stöðugur metingur er á milli þessara borga en segja utanaðkomandi að Sucre sé meiri höfuðborg þó það sé ekki mikill höfuðborgarblær yfir henni, en La Paz hefutr að geyma governmentið. Um er að ræða alveg ofboðslega fallega borg, mjög svo frábrugðna öðrum í Bóliviu satt best að segja. Byggðin er dreifðari, ekki mikið byggt upp í loft eins og oft vill verða í stórborgum heldur eru þarna hvítmálaðar byggingar sem hafa að geyma svona það helsta sem góð höfuðborg þarf að hafa upp á að bjóða (á bólivískum skala). En þó er ekki jafn mikið áreiti og er oftast raunin.....þó svo að töluvert sé um betl eins og annarstaðar í þessu landi.

Við komum til borgarinnar, tókum leigubíl í miðbæinn og gengum milli hostela í leit að þokkalegri gistingu á þokkalegu verði. Það ætlaði að verða erfiðara en að segja það! Fórum eflaust á svona tíu hostel sem voru öll hrikalega overpriced miðað við Bóliviu og satt að segja öll algjör viðbjóður. Þegar við gengum upp eina aðalgötuna kemur þessi svakalegi fólksfjöldi á móti okkur! Við stóðum þarna með tugkílóa bakpokana okkar og áður en við vissum af vorum við orðinn stór partur af þessum líka svakalegu mótmælum! Það virtist vera sem að allir borgarbúar væru mættir! Hittum á enskumælandi mann sem var að vinna í því að opna hostel með fjölskyldunni sinni og hann fræddi okkur um það að mótmælin væru tilkomin vegna þess að strætóbílstjórar borgarinnar hefðu farið í verkfall og höfðu samgöngur legið niðri í 9 daga vegna mótmæla. Strætóbílstjórarnir voru nefnilega að krefjast þess að fargjöldin yrðu hækkuð! Um heilar 30 íslenskar krónur!! Það þarf ekkert Icesave hér! Allir borgarbúar sameinuðust, flikktust út á götu og gáfu strætóbílstjórum og yfirvöldum fingurinn... strætókerfið var farið að ganga sinn vanagang daginn eftir J

En hjá þessum ágæta manni sem fræddi okkur um þetta fengum við þessa líka svakalegu luxusgistingu á dúndurdíl og vögguðum við upp erfiða brekku á hostelið hans. Þessi borg var fín til þess að taka því rólega og rölta um en satt að segja var ekkert merkilegt hægt að gera þarna, bara rölta um og njóta frelsisins. Við skoðuðum borgina fram á kvöld eða þar til við lentum í næstu mótmælum! Já, tvö mótmæli á dag koma skapinu í lag! Að þessu sinni voru það stúdentar sem voru að mótmæla niðurskurði hvað þeirra mál varðar og að þessu sinni voru mótmælin mun harðari. Kindlar, reykur, öskur og söngvar um helstu götur borgarinnar en lögreglan hafði fulla stjórn á hlutunum. Við svöluðum aðeins forvitninni en vildum svo ekki vera of nálægt látunum og hoppuðum inn á frábæran kínverskan veitingastað.

Þarna vorum við í tvær nætur og nutum þess að vera komin úr áreitinu í hinni höfuðborginni, gengum um götur, fórum á góða veitingastaði og kaffihús (sem við höfðum hingað til ekki kynnst í Boliviu). Keyptum nýkreista ávaxtasafa á nokkrar krónur í lítratali og gáfum með okkur duglegum 11 ára dreng sem var að vinna fyrir sér með skóburstun. Annan skemmtilegan mann hittum við í sælgætisverslun sem fór að þylja upp sögur af Leifi Eiríkssyni og félögum! Eins og áður kom fram var í raun ekkert sérlega merkilegt sem gerðist þarna fyrir utan mótmælin, við vorum reyndar svo ánægð með dvöl okkar á hostelinu að Hilmar réð sig í vinnu við að miðla upplýsingum um hostelið til annarra feralanga. Fyrir þetta fær hann 15% af greiðslum hvers gests sem hann reddar... spurning hvernær það verður rukkað um þær miklu fjárhæðir sem hann á nú þarna inni. En borgin er góður staður til að taka því rólega og gerðum við það í þennan tíma áður en við lögðum í hann til hæstu borgar í heiminum, þar sem silfurnámurnar eru!
Slideshow

Comments

mamma G. on

Fínt að vinna fyrir ferðinni (eða fá upp í kostnað) með því að selja öðrum ferðalöngum hostelgistingu ;-) Takk fyrir pistilinn og hlakka til næsta, drífið ykkur nú svolítið áleiðis :-) Knús og kossar frá okkur, mamma

Eva sys on

Ahhhh elllllska Sucre! Ein af mínum uppáhalds borgum. Lentum ekki í mótmælum heldur tónlistarfestivali sem var heldur betur sniðug. Hittuð þið ekki litlu strákana sem gátu þulið upp allar höfuðborgir heimsins? Þeir eru kannski orðnir svona tíu ára í dag elsku kallarnir

Freyja mamma on

Snilld!
Ég skal taka ágóðann fyrir þig sonur þegar ég gisti þarna. Kannski fæ ég bara afslátt út á sjarmerandi son og tengdadóttur.

Maríanna on

Huggulegt!! ... og týpískt Hilmar að fá vinnu við að selja e-ð! kominn með fráhvarfseinkenni?? ;op

Heldri on

Líkar þetta
kv Pabbi

Himmi on

Það er náttúrulega nauðsynlegt að ná inn smá aur öðru hverju, ekki einungis fyrir mat og gistingu heldur er það bara heilsunnar vegna nauðsynlegt að hafa smá innkomu hversu mikil sem hún er.

Annars sáum við ekki þessa drengi sem þú talar um Eva... fólk eldist svo hratt hérna, getur ekki verið að einn af þeim sé á myndinni þarna efst í blogginu?

Add Comment

Use this image in your site

Copy and paste this html: