Colca Canyon

Trip Start Dec 22, 2010
1
29
54
Trip End Ongoing


Loading Map
Map your own trip!
Map Options
Show trip route
Hide lines
shadow

Flag of Peru  ,
Tuesday, March 8, 2011

Úrvinda eftir ógeðins næturrútuna komum við til Cabanaconde sem er lítill fátækur bær sem er ekkert að stressa sig á að vera ekki með nútíma tækni. Engir hraðbankar, búðir opnar á ákveðnum tíma dags og internet var stundum hægt að komast á, eða þegar bæjarstjórinn var á skrifstofunni sinni í bænum. Við vorum alveg á því að hvíla okkur þennan dag í þessum fallega bæ sem er rétt við Colca Canyon en eftir að hafa rætt við ágætan mann sem þekkti vel til þá drifum við okkur af stað ein, án leiðsögumanns með smá kortakrot að vopni í gegnum bæinn og að brún DÝPSTU GLJÚFRA Í HEIMI! VÁ! Þvíík fegurð!!

Við vorum svo hrikalega heppin með veður, það var búið að segja okkur í Machu Piccu að vera ekkert að dröslast þarna niður í landið þar sem ekkert væri þarna að sjá á þessum árstíma útaf regntímabilinu. En þessari ákvörðun okkar áttum við sko ekki eftir að sjá eftir!! VIÐ HÖFUM FUNDIÐ HINA RAUNVERULEGU PERÚ!! Hilmar sá áralanga drauma sína rætast sem eru væntanlega tilbúnir vegna samblöndu af góðri landafræðikennslu í grunn- og menntaskóla og óhóflegu áhorfi og lestri af ævintýrum hans Tinna og hundsins Tobba! Fjallaútsýninu er vart hægt að lýsa, gengum við meðfram þessum mikilfenglegu gljúfrum með stórfenglega Condora fljúgandi yfir hausamótunum okkar og var varla þorað að taka spor áfram án þess að taka að minnsta kosti eina mynd! Þegar við komum neðar í gljúfrin tók á móti okkur ennþá fjölbreyttara dýralíf, dásamlegt fólk í litlu krúttlegu fjallabæjum sínum, mjög svo ánægt með að sjá ný andlit í bæjunum sem það hefur búið í allt sitt líf! Þrátt fyrir æðislegheitin ákváðum við að koma okkur góðan hring á tveimur dögum. Vorum hálf slapparaleg fyrri daginn eftir erfiða rútuferð og lítinn svefn en drösluðumst þó alveg niður í dýpsta punkt gljúfrana og yfir í tvö lítil þorp, annað sem var við ánna sem liggur um gljúfrin, þar sem var ákveðið að gista í þessum fínu leirhúsum. Skildum við bakpokana þar eftir og skottuðumst upp í annan bæ sem átti að taka tvær klukkustundir að ganga í en einhver kraftur kom í okkur vegna upplifelsinsins og þrömmuðum við þetta á tæpri klukkustund. Ekki var sá bær minna krúttlegur, svín og hænsn í görðunum hjá fólki, ein virðuleg kirkja en annars hálfgerð hreysi en það breytti því ekki hversu lífsglatt fólkið þarna var. Kona með kindur sínar á rölltinu heilsaði okkur innilega og feðgar sem voru að höggva eldivið voru mjög svo spenntir að sýna takta sína. Stoppuðum við þarna í drykklanga stund eða þar til rökkva tók og hlupum svo niður til að ná fyrir myrkur. Fengum þennan fína kvöldmat (sagt með smá kaldhæðnistón reyndar, það var lamadýr í matinn slurpslurp) en fórum svo í háttinn í kolsvörtu myrkrinu, mjög sátt við að ná loksins almennilegri hvíld! Eitt kerti er inni í leirkofanum gerði það að verkum að Hilmar sá eitthvað skrítið á veggnum þegar Sigrún var að bursta tennurnar. Við nánari athugun var hún fljót að hlaupa út organdi og komst Hilmar að því að um lítið krúttlegt sporðdrekaskott var að ræða! Hressandi svona rétt fyrir svefninn!!

Næsti dagur var tekinn mjög snemma þar sem löng ferð var fyrir höndum. Í birtingu og skítakulda þrömmuðum við af stað áleiðis í litla bæi sem átti að taka tvær og hálfa klukkustund að komast í. Þetta tók okkur rétt um 40 mínúturnar og höfðum við því minni áhyggjur en áður að ná ekki rútunni um kvöldið. Í fyrri bænum vorum við greinilega á ferð áður en bæjarbúar vöknuðu sem var skemmtileg upplifun út af fyrir sig. Enginn var á ferli nema dýrin og var þetta eins og að ganga í gegnum þorp sem hafði lagst í eyði. Þegar komið var í seinna þorpið voru morgunhanar komnir á kreik og sást reykur úr nokkrum strompum. Við höfðum heyrt af litlu safni í þessum bæ og vöktum heimilisfólk, konan lagaði dýrindis pönnukökur í morgunmat handa okkur og karlinn sýndi okkur alveg dásamlegt safn um það hvernig fólk hefur lifað þarna í gljúfrunum í gegnum aldirnar, frá tímum Inkanna. Hann hafði greinilega jafn gaman af okkur og við af honum og sýndi hann okkur stórmerkilega hluti, allt frá klæðnaði fólksins, hvernig hann var gerður, veiðiaðferðir, þau dýr sem veidd væru og hvernig þau unnu korn og salt sem þau svo nýttu til að lifa af fjarri öðrum byggðum.

Mjög sátt með þetta stopp skunduðum við svo áfram þar til við komum að botni gljúfursins, en þar mátti finna nútímalegri gistiheimili með sundlaugum og öllu tilheyrandi. Við tókum nú bara stutt nestisstopp þarna enda miklu skemmtilegra að vera í gömlu bæjunum en nú var smá vesen fyrir höndum! Við áttum eftir að fara UPP úr gljúfrunum aftur!! Leiðin upp löööööng og vorum við í steikjandi hita að reyna að spara síðustu vatnsdropana upp þessa hrikalegu leið. Þetta hófst þó allt fyrir rest og fengum við æðislegt útsýni áður en við rölltum til Cabanaconde þaðan sem við tókum næturrútu til Arequipa. Hreinan djöfulsins viðbjóð þar sem vegirnir eru ógeðslegir, 6 tíma ferð og 2 tíma stopp í einum bæ á meðan bílstjórinn var að leggja sig! Sátt og dauðþreytt komum við snemma morguns til Arequipa, náðum í draslið okkar á Hostelið og héldum upp í næstu rútu! Nokkrir klukkutímar til stefnu og við verðum komin að bökkum stærsta vatns í þetta mikilli hæð í heiminum, Lake Titicaca.
Slideshow

Post your own travel photos for friends and family More Pictures

Comments

Bryndís on

Mér finnst hver einasta nýja færsla sem þið skrifið hér inn ævintýralegri, skemmtilegri og ennþá meira spennandi en sú á undan. Þessi var alveg frábær, þið eruð sko virkilega að njóta lífsins !! Ég sit hér í Geysi, að mana mig upp í að fara í afstemmingar, þá sjáið þið hversu skemmtilegt kvöldið verður hjá mér :)
Koss og knús á ykkur :*

mamma G. on

Stórkostlegt - dásamlegt - meiriháttar..... bæði pistill og myndir. Það er svo frábært að upplifa RAUNVERULEGT LÍF á hverjum stað, spjalla við innfædda í litlu þorpunum eða sveitunum, mér finnst þetta bara alveg yndislegt . Takk fyrir mín elskulegu að leyfa okkur að taka svona þátt í ævintýraferðinni með ykkur. Gangi ykkur allt vel og við sendum allt okkar besta til ykkar. Endalaust knús og kossar, mamma.

Eva sys on

Jidúddamíaalmáttugur éggetsvosvariðþað - á innsoginu-

ps. hvað er þetta framan í bróður mínum? vex honum skegg?

Áshildur on

Virkilega gaman að fá allar þessar myndir af mannlífinu og hinu smá og fínlega líka eins og blómum, pöddum og fuglum. Þið eruð sannarlega vakandi fyrir umhverfinu og kunnið að njóta. Gaman að fá smá smjörþef af þessari ævintýraferð ykkar. Við Einar biðjum kærlega að heilsa og njótið hverrar mínútu. kv áshildur

Heldri on

Stórkostlegt. Þakka fyrir elskurnar. Gaman að upplifa svona með ykkur
Pabbi og ferðalangarnir Dimma og Coco sem skruppu 1 sólarhring til Akureyrar

freyja mamma on

Æðisleg myndasería og óborganleg færsla. Getið þið ekki farið að koma heim......til að hjálpa mér að skipuleggja svona ferð. Þangað til, takk fyrir að fá að vera með ykkur í ferðinni. Sakn sakn frá mér, Coco pókó og Dimmu dásemd.

pabbi on

°Æðislegt - frábærar myndir og frábær texti. Söknum ykkar en gleðjumst með ykkur. Sit á Bifröst og er að basla.
xxx pabbi

Himmi on

Brandur… ef einhver aetti ad vita tad ta lifir madur bara einu sinni… forever young og allt tad ;) Gerdu eitthvad flippad! Gerdu villu I bokhaldid eda eitthvad!! ;) Annars var tad algjor snilld ad hitta tetta folk og bua adeins hja teim, hefdi samt ekki matt vera of langur timi tarna I gljufrunum held eg ;) Eva sys… eg verd ad vidurkenna ad eg er ekki mjog duglegur ad sinna omerkilegum vestraenum thrifa og raksturshefdum, en tu getur amk verid anaegd med tad ad brodir tinn er I tad minnsta ekki enntha farinn I mutur!
Vid erum alveg I retta girnum herna ashildur, tad er allt svo otrulega merkilegt sem vid sjaum ad vid vildum helst taka video af ollu og senda heim! Tetta er alveg otruleg lifsreynsla hvern einasta dag!
Pabbi nu erum vid ad klappa hostelhundum sem eru adeins betur a sig komnir en flaekingshundarnir her… minna adeins meira a coco en hinir ;) Mamma tad er alltaf haegt ad taka thatt I ad plana svona ferdir, tho vid lifum bara einn dag I einu helst! Samt erfitt ad rifja tetta sienna meir tvi vid erum ordin vel hukt a svona ferdalogum held eg.. erum strax farin ad plana naesta!

Add Comment

Use this image in your site

Copy and paste this html: